Hvernig virkar Hemi-Sync?
Hemi-Sync er hljóðmynstur sem samstillir heilahvelin með því að breyta bylgjulengd sem hann vinnur á. Athyglin verður betri, minni eykst og fólk hvílist betur og nær betri svefni. Þegar við erum í tilteknu hugarástandi (t.d. einbeitt eða sofandi) þá mælast heilabylgjurnar á ákveðinni tíðni. T.d. nefnast þær heilabylgjur sem mælast í einbeittu hugarástandi “beta”.Hemi-Sync hefur áhrif á heilabylgjurnar með því að spila hljóð með mismunandi tíðni í vinstra og hægra eyra. Heilinn bregst við þessari bjögun (mismunur á tíðni) með því að samstilla tíðnina svo úr verður þriðja bylgjan sem framkallar hið eftirsóknarverða hugarástand.
Þannig notum við mismunandi diska eftir því hvort við erum að reyna að einbeita okkur við nám og vinnu eða einfaldlega að ná slökun fyrir svefn.
Einbeiting og nám
Áhrif hemi-sync diska með beta tíðni á heila barna með athyglisbrest og/eða ofvirkni (ADD) eru mjög góð. Eftirtekt eykst og hvatlyndi minnkar. Hin samvirku áhrif skapa ýmisskonar örvun sem hefst í heilaberki og fer yfir í randkerfið þaðan sem tilfinningum okkar er stjórnað.
Svo virðist sem samhæf blanda tónsmíða með yfirtónum á beta-tíðni og hemi-sync ívafi auðveldi nauðsynlega samstillingu heilans.
Þaulrannsökuð tækni
Áhrif hemi-sync diska á virkni heilans hafa verið rannsökuð áratugum saman. Læknar, sálfræðingar og margir fleiri meðferðaraðilar hafa notað Hemi-sync um áraraðir með frábærum árangri.
Algengt notkunarsvið
- Bætt einbeiting
- Slökun
- Svefn
- Kvíði og depurð
- Verkir
Hvað finnst þér? Sendu línu!
You must be logged in to post a comment.