Hvað er skrifblinda?

Hvað er skrifblinda?

Skrifblinda (rithömlun) kallast það þegar lesblindur einstaklingur á í erfiðleikum með að skrifa.
Nokkrar ástæður eru fyrir skriftarörðugleikum. Ein algengasta orsök lélegrar (ljótrar) rithandar er slök stafsetning.  Ljót skrift er semsagt notuð til að leyna stafsetningarvanda
handskrifSkynbjögun (skynvilla) kemur við sögu í alvarlegri tilvikum skrifblindu, en þá hefur einstaklingurinn í raun aldrei skynjað (séð) línurnar eins og þær eru í raun, heldur einungis bjagaða útgáfu af þeim.

Til að geta skrifað þarf m.a. að kunna að teikna beinar línur. Ef skrifblint barn hefur aldrei séð þær (tekið eftir þeim) þá teiknar barnið það sem það hefur séð.

Bjagaða myndin sem heilinn meðtók þegar barnið horfið á skálínurnar, verður fyrirmyndin að því sem síðar kemur.

Léleg samhæfing og jafnvægisskyn getur haft með þetta að gera einnig. Í mörgum tilvikum hefur skrifblint barn einnig litað illa – átt í erfiðleikum með að lita innan ramma.

Myndbandið (0:47) sýnir dæmi um “leiðréttingu” á rithönd skrifblinds nemanda

 

Ummæli

ummæli lesenda

Fáðu nýjustu póstana beint í innhólfið þitt!

Um Kolbeinn Sigurjónsson

Ég heiti Kolbeinn Sigurjónsson og starfræki Betra nám. Markmið Betra náms er að veita ráðgjöf og úrræði í tengslum við lesblindu og námsörðuguleika sem henta aldri og getu hvers og eins. Betra nám hefur boðið upp á Davis lesblindunámskeið og tók virkan þátt í innleiðingu Davis aðferðafræðinnar á Íslandi.

Ég er með diploma réttindi frá Alþjóðlegu Davis samtökunum (Davis Dyslexia Association International), auk réttindi til dáleiðslumeðferða (Dip.Hyp.Therapy) og B.sc. í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.