Ef þú þarft að hafa aðgang að skjölum hvar og hvenær sem er, og ert orðin þreytt(ur) á að muna eftir USB lyklinum eða að gramsa í tölvupóstinum að viðhengjum sem þú sendir á sjálfa(n) þig – þá er Google Drive fyrir þig.
Google Drive er þín eigin mappa á netinu. Ef þú hefur Google aðgang (t.d. gmail) þá hefur þú sjálfkrafa aðgang að Google Drive og það tekur aðeins augnablik að setja upp.
Með því að setja upp Google Drive verður til “Drive” mappa í tölvunni þinni sem er sítengd við Drive möppuna þína á heimasvæði Google. Það þýðir að öll skjöl og allar möppur speglast sjálfkrafa í vefmöppunni á netinu.
Google Drive fylgir 5Gb pláss (Dropbox byrjar með 2Gb) og það er auðvelt að deila möppum með öðru fólki. Þannig geta 2 nemendur sem deila möppu vegna skólaverkefnis haft rauntímaaðgang að sömu möppunni í tölvum sínum og ávallt séð og unnið í nýjustu útgáfu skjalsins án þess að þurfa að senda það á milli sín í tölvupóstinum.
Ef þú notar GMail eða Google Docs þá er þetta rökrétt framhald.
Þetta er auk þess fyrirtaks afritunarmáti fyrir gögn
Með þessu móti getur þú auðveldlega komist í öll helstu skjól hvar og hvenær sem er. Allt sem þú þarft er nettengd tölva og með því að skrá þig inn getur þú nálgast öll skjöl á netinu sem eru í Drive möppunni þinni í tölvunni þinni.
Þú ert því ekki lengur bundin(n) við eina tölvu, heldur getur þú notað síma, spjaldtölvu, vinnutölvu eða hvaða tæki sem er til að nálgast nýjustu útgáfu skjalsins. Ef þú vinnur í skjalinu og vistar það aftur þá bíður nýjasta útgáfan að sjálfsögðu glóðvolg í þinni tölvu næst þegar þú kveikir á henni. Þessi svokölluðu “ský” gera okkur kleift að hafa rauntíma aðgang að skjölum og myndum án þess að binda okkur við tiltekna tölvu/tæki eða stýrikerfi.
Slíkt “frelsi” verður sífellt mikilvægara þar sem skrifstofan takmarkast ekki við veggi og þil heldur er hún hálfgert sýndarfyrirbæri, bara hugtak. Þú verður sjálf(ur) að afmarka og takmarka þann aðgang sem þú hefur að vinnu eða öllu heldur, vinnan að þér.
Eins og ég nefndi þá eru fleiri valkostir í myndinni s.s. Dropbox og Microsoft Skydrive (7Gb) auk Ubuntu One (5G) svo það er óhætt að segja að dagar litlu USB lyklanna séu taldir.
Hvað finnst þér? Sendu línu!
You must be logged in to post a comment.