Fá fög valda jafn stórum hópi jafn miklum erfiðleikum og stærðfræði. Eins mikilvæg og notadrjúg hún er (jafnvel í daglegu lífi), þá er eins og stór hluti nemenda tengi ekki við það sem fram fer í kennslustofunni. Eftirspurn eftir einkakennslu og stærðfræðiaðstoð er stöðug. Víða á landsbyggðinni er minna um úrræði en á höfuðborgarsvæðinu og því eru góð ráð dýr. Eða hvað?
Til að geta lært stærðfræði er æskilegt að hafa þokkalega góð tök á þessum þáttum:
- Hugtakaskilningur: Hvað hugtökin þýða, s.s. “námundun” og “blandnar tölur”
- Grunnaðgerðir og hugarreikningur: Að geta unnið með grunnstærðir í huganum, lagt saman, margfaldað osfrv.
- Aðferðafræði: Að vita hvaða aðferð skal beita til að leysa tiltekin dæmi. Hvað skal gera fyrst og hvað svo.
Það er ótrúlega algengt að nemendur sem glíma við erfiðleika í stærðfræði og leita eftir stærðfræðiaðstoð eigi erfitt með einn eða fleiri ofangreindra þátta.
Myndræn hugsun
Margir nemendur eiga auðvelt með að sjá hluti fyrir sér. Þeir “horfa” á hugsanir sínar og gengur yfirleitt vel í verklegum eða skapandi greinum. Þessi hópur skilur vel hugtök sem eru myndræn en á að sama skapi oft erfitt með hugtök sem eru ómyndræn.
Ómyndræn hugtök eru t.d. nöfn og ártöl, orðflokkar (s.s. “atviksorð”) og stærðfræðihugtök (“óræð” tala).
Þessi eiginleiki nýtist nemandanum vel í verklegum greinum en getur komið honum í koll í fögum eins og íslensku og stærðfræði.
Almenn brot
Almenn brot eru einn mikilvægasti hlutinn í stærðfræðikennslu grunnskóla. Það sést vel á því að þau eru viðfangsefni nemenda frá 4. upp í 10. bekk.
Ekki nóg með það, þau eru einnig hluti af Stæ 102, sem er fyrsti áfangi í framhaldsskóla.
Mjög margir þurfa á viðbótarkennslu og aðstoð að halda, s.s. í formi einkakennslu eða stærðfræðiaðstoðar, og hana þarf oftar en ekki að sækja út fyrir skólann. Fyrir marga kemur ekkert í staðinn fyrir maður-á-mann kennslu en fyrir marga er nóg að fá heildrænar útskýringar á mannamáli .
Stærðfræðin verður sífellt mikilvægari þar sem atvinnulíf tekur stöðugt breytingum og síðustu ár hefur atvinnulífið kallað sáran eftir sérfræðimenntuðu fólki, s.s. á sviði verk- og tölvunarfræði. Það er því ljóst að þörfin á stærðfræðiaðstoð er alls ekki að minnka, þvert á móti.
Einkakennari í vasanum
Betra nám vinnur nú að þróun fjarnámskeiðs í Almennum brotum. Markmiðið er að bjóða upp á nýja nálgun þar sem nemandinn er leiddur í gegnum námsefnið skref fyrir skref.
Þess er gætt að efnið verði ekki yfirþyrmandi og er stór hluti námskeiðsins á myndrænu formi (vídeó).
Við munum á næstunni bæta við upplýsingum um framgang verkefnisins en þú getur líka skráð þig hér og fengið þannig nánari upplýsingar um gang mála.