Við þekkjum öll leiðinlegar auglýsingar sem birtast oftar en ekki á leikjasíðum sem bjóða upp á ókeypis leiki. Barnvænar síður eru oft á tíðum ekki svo barnvænar. Hér er ókeypis lausn sem virkar fyrir flestar tölvur, spjaldtölvur og síma.
AdBlock Plus er ókeypis forrit sem þú setur í tölvuna þína og virkar forritið þannig að vafrinn sækir ekki auglýsinguna sem annars myndi birtast. Forritið er einfalt í uppsetningun hefur nokkuð vel þar sem ég hef sett það upp sjálfur. Það lokar jafnvel á “popup” glugga og myndi t.d. fjarlægja auglýsinguna sem birtist hér fyrir neðan alla pósta;)
AdBlock Plus hefur sérstakt gildi þegar kemur að því að verja börn fyrir óæskilegum auglýsingum. Mörg þeira spila fría leiki á leikjasíðum og þar grassera oft auglýsingar frá stefnumótasíðum, pókersíðum og öðru efni sem ætlað er til að fá grunlausa spilara inn á vefsíður sem oft innihalda vírusa og annan óþrifnað.
Mörg dæmi eru um krakka sem flækjast inn á vefsíður sem eru alls ekki ætlaðar þeim, aðeins vegna þess að smellt var á auglýsingu sem birtist á vefsíðu sem er hugsuð fyrir krakka.
Skoðaðu myndbandið hér að neðan og heimasíða AdBlock er hér.
Hvað finnst þér? Sendu línu!
You must be logged in to post a comment.