Velkomin(n) á bloggsíðu Betra náms. Ég heiti Kolbeinn Sigurjónsson og starfræki Betra nám. Betra nám veitir einkum ráðgjöf í tengslum við lesblindu og námsörðugleika, en einnig er mikil áhersla lögð á upplýsingagjöf fyrir foreldra.
Davis lesblindunámskeið eru hluti af námskeiðum Betra náms enda tók ég virkan þátt í innleiðingu Davis aðferðafræðinnar til Íslands á árunum 2003-2005, m.a. sem framkvæmdastjóri Lesblind.com sem var stofnað sérstaklega í þeim tilgangi að innleiða Davis hugmyndafræðina.
Á þessum tíma kom fjöldi erlendra Davis leiðbeinenda og sérfræðinga til landsins og hlaut rúmlega 20 manna hópur Íslendinga menntun sína á þessum tíma. Upphafsmaður Davis kerfisins og höfundur metsölubókarinnar Náðargáfan Lesblinda, Ron Davis, kom einnig nokkrum sinnum til landsins á okkar vegum og hélt m.a. fyrirlestra um lesblindu í fullu húsi í Háskólabíói.
Ég lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1992, námi í Kerfisfræði frá TVÍ 1995 (nú Háskólinn í Reykjavík) auk Diplómanáms frá Alþjóðlegu Davis samtökunum 2004(DDAI) og Bsc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2010. Árið 2011 lauk ég diplómanámi í dáleiðslumeðferð (Hypno-Therapy) frá Hypnosis-Centre í Skotlandi. Ég er meðal stofnmeðlima í Félagi Dáleiðslutækna (The Icelandic Hypnotherapy Society).
Ég hef starfað við Davis ráðgjöf frá árinu 2003 eða síðan aðferðafræðin var innleidd á Íslandi, fyrst sem framkvæmdastjóri Lesblind.com. Ég tók þátt í að stofna Lesblindusetrið árið 2005 ásamt 5 öðrum ráðgjöfum og Betra nám í ársbyrjun 2008. Fram til 2004 starfaði ég við hugbúnaðarþróun.
Auk einkaráðgjafar vinn ég fyrir Mími símenntun og Hringsjá (Náms- og starfsendurhæfing) auk sérnámskeiða fyrir fræðslu- og símenntunarstöðvar. Lesblindusetrið hlaut árið 2007 tilnefningu Fréttablaðsins til Samfélagsverðlauna fyrir “Framlag til æskulýðsmála”.
Þér er velkomið að skoða þig um eða hafa samband.
Betra nám er:
GK Ráðgjöf ehf.
kt. 550403-3660
Banki: 549-26-3660
Kjarni – Þverholti 2 – 5. hæð
270 Mosfellsbær
Sími 566 66 64
Heimasíða: www.betranam.is