Lesblinda? Betra nám kynnir enn eina nýjung fyrir foreldra!

Heimalestur er nýtt fjarnámskeið Betra náms.   Námskeiðið er ætlað foreldrum barna í 1.-4. bekk og byltir aðgengi þeirra að upplýsingum um lesblindu og sérfræðiráðgjöf.

Leslinda? Fjarnámskeið fyrir foreldraFæstir foreldrar – og margir kennarar – þekkja einkenni lesblindu fyrr en of seint.  Lesblinda er sjaldnast greind  fyrr en í 4. bekk.  Á þitt barn betra skilið?  Lærðu að þekkja einkennin og beittu réttum handtökum fyrr en síðar.  Það margborgar sig!

Ef barnið þitt hefur lokið 1.-4. bekk og á í sjáanlegum – og heyranlegum erfiðleikum með lesturinn, þá er ástæða til að staldra við.

Fjarnámskeiðið Heimalestur er áskriftarnámskeið sem veitir leitandi foreldrum aðgang að upplýsingum og reynslu sem erfitt er að nálgast annars staðar.  Hér finnur þú upplýsingar sem varða stafa- og lestrarkennslu, ólíka þeim sem stunduð er í skólanum.

Lærðu að þekkja einkenni hugsanlegrar lesblindu (dyslexiu) og beittu aðferðum sem virka áður en vandamálið vex þér yfir höfuð.

Smelltu hér til að kynna þér námskeiðið nánar og gerast áskrifandi.

Ummæli

ummæli lesenda

Fáðu nýjustu póstana beint í innhólfið þitt!

Um Kolbeinn Sigurjónsson

Ég heiti Kolbeinn Sigurjónsson og starfræki Betra nám. Markmið Betra náms er að veita ráðgjöf og úrræði í tengslum við lesblindu og námsörðuguleika sem henta aldri og getu hvers og eins. Betra nám hefur boðið upp á Davis lesblindunámskeið og tók virkan þátt í innleiðingu Davis aðferðafræðinnar á Íslandi.

Ég er með diploma réttindi frá Alþjóðlegu Davis samtökunum (Davis Dyslexia Association International), auk réttindi til dáleiðslumeðferða (Dip.Hyp.Therapy) og B.sc. í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Hvað finnst þér? Sendu línu!