Fjarnámskeið í Almennum brotum fyrir 5.-10. bekk

Fjarnámskeið í Almennum brotum fyrir 5.-10. bekk

Í gegnum tíðina hafa margir haft samband við mig og falast eftir stærðfræðiaðstoð eða einkakennslu.  Þörfin á slíkri þjónustu er mikil, ekki síst úti á landi þar sem færri úrræði eru til staðar.

En nú verður breyting á.

Betranam1Síðustu mánuði hefur undirbúningur að vönduðu kennsluefni í almennum brotum staðið yfir í samstarfi við Halldór Þorsteinsson, kennara.

Við höfum starfað saman í nokkur ár, en Halldór er menntaður viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum auk þess sem hann er með kennsluréttindi frá HÍ.

Hann hefur starfað við stærðfræðkennslu í rúmlega 5 ár, með nemendum sem margir hverjir hafa glímt við mikla og djúpstæða stærðfræðiörðugleika.

Samanlagt höfum við því unnið með nemendum sem glíma við námsörðugleika í rúm 15 ár.

Nýstárleg nálgun

Við lofum vönduðu efni sem henta mun breiðum hópi nemenda, ekki síst þeim sem átt hefur erfitt uppdráttar, s.s. nemendum með lesblindu og athyglisbrest.  Námsefnið er sett fram með mjög myndrænum hætti og er markvisst leitast við að lágmarka lesefni.

Námskeiðið er spjaldtölvuvænt

Námskeiðið er spjaldtölvuvænt

Námskeiðið er fjarnámskeið sem greitt er fyrir mánaðarlega, og er það sérstaklega hannað fyrir spjaldtölvur og síma í huga.  Nemandi kemst því hvar og hvenær sem er í kennsluefnið.  Segja má að námskeiðið sé þinn eigin einkakennari, nema ódýrara.

Almenn brot eru gríðarlega mikilvægur þáttur í stærðfræðinámi hvers nemanda sem sést vel á því að þau eru viðfangsefni frá 4.-10. bekk í grunnskóla, en einnig eru þau kennd sem hluti af Stæ 102 í framhaldsskólum (Algebru).

Því má bæta við að algeng orsök þess að nemendur lenda í erfiðleikum í framhaldsskóla er einmitt veikur grunnur þegar kemur að því að vinna með almenn brot.

Námskeiðið er kjörin leið til að tryggja árangur í almennum brotum, það er alls ekki nauðsynlegt að glíma við stærðfræðiörðugleika af neinu tagi.  Að sjálfsögðu leggjum við upp með það að námskeiðið henti þeim sem þurfa á einkakennslu eða stærðfræðiaðstoð að halda, framsetningin er myndræn og hentar þeim nemendum vel sem eiga erfitt með að skilja lesin fyrirmæli.

Við látum þig vita

Þú getur skráð þig á lista hjá okkur (það kostar ekki neitt og engin skuldbinding fylgir) og við munum senda þér upplýsingar um gang mála næstur vikur og mánuði.

Skráning

 

 

Ummæli

ummæli lesenda

Fáðu nýjustu póstana beint í innhólfið þitt!

Um Kolbeinn Sigurjónsson

Ég heiti Kolbeinn Sigurjónsson og starfræki Betra nám. Markmið Betra náms er að veita ráðgjöf og úrræði í tengslum við lesblindu og námsörðuguleika sem henta aldri og getu hvers og eins. Betra nám hefur boðið upp á Davis lesblindunámskeið og tók virkan þátt í innleiðingu Davis aðferðafræðinnar á Íslandi.

Ég er með diploma réttindi frá Alþjóðlegu Davis samtökunum (Davis Dyslexia Association International), auk réttindi til dáleiðslumeðferða (Dip.Hyp.Therapy) og B.sc. í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.