Pimsleur

NÝTT TUNGUMÁL Á 10 DÖGUM?

Líklega öflugasta, einfaldasta, fljótlegasta og árangursríkasta tungumálanámskeið sem völ er á!

Pimsleur tungumálanámskeiðin eru án efa ein öflugasta, einfaldasta, fljótlegasta og árangursríkasta leiðin til að læra tungumál. Jafnvel frá grunni. Pimsleur gerir þér kleift að byrja að tala nýtt tungumál að aðeins 10 dögum! Og það með afbragðs framburði!

Ertu ekki búin(n) að fresta því nógu lengi að læra draumatungumálið?

Pimsleur námskeiðin byggja á byltingarkenndri en þaulreyndri tækni. Úrvalilð er gríðarlegt, þú getur valið úr 50 tungumálum.

Loks getur þú látið drauminn um að læra nýtt tungumál verða að veruleika án þess að fjárfesta í dýrum tungumálanámskeiðum.

Gæðanámskeið á frábæru verði sem virka. Þú þarft engan kennara, engar bækur og engin verkefnavinna.

Þú getur lært tungumál með Pimsleur, jafnvel framandi mál sem þú kannt skilur ekki stakt orð í!

Láttu ekki misheppnaðar tilraunir eða slakan árangur í tungumálum draga úr þér kjarkinn!

  • Áttir þú erfitt með að læra tungumál í skóla?
  • Áttu þér margra ára gamlan draum um að geta talað og skilið tungumálið?
  • Óttastu að tungumálanám sé meðfædd náðargáfa og alls ekki fyrir alla?
  • Hefur þú farið á tungumálanámskeið áður, og lært lítið sem ekkert gagnlegt?
  • Finnst þér mikið að borga tugi þúsundi fyrir nokkurra vikna námskeið?

Frábært! Þá er Pimsleur fyrir þig!

  • Engar bækur, enginn lestur.
  • Engar vinnubækur.
  • Engin glósuvinna né krafa um að læra glósulista utanað
  • Engin þörf á orðabók
  • Einungis 30 mínútna hlustun á dag

Ath: Þulur námskeiðsins talar ensku (mjög skýrt) svo þú þarft að skilja ensku þokkalega (ekki tala).  Ef þú vilt læra ensku smelltu þér hér.


Engar bækur, engin málfræði

Sérkenni Pimsleur námskeiðanna felst í einfaldleika þeirra og þeim ótrúlega árangri sem nemendur ná á skömmum tíma.

Pimsleur All Languages

Námskeiðin eru bókarlaus og þú eyðir engum tíma í þreytandi málfræðiæfingar og glósur.

​Engu að síður lærir þú afburða framburð, og þú lærir að tala málfræðilega rétt.

Gæðanámskeið á ótrúlegu verði!​

Veldu þitt Pimsleur námskeið

Smelltu og við flytjum þig á Pimsleur heimasíðu Simon & Schuster's þar sem þú getur skoðað námskeiðin nánar og gengið frá kaupum.

Ótrúlegt úrval, yfir 50 tungumál í boði!  Hefur þú áhuga á norsku, dönsku eða sænsku eða jafnvel pólsku?


NÝTT! Íslenska fyrir útlendinga

Nú er hægt að læra íslensku líka.  Smelltu hér.til að fara á Pimsleur síðuna á sláðu inn "Icelandic" í leitarsvæðið.


Bara að hlusta - Ótrúlega einfalt

Pimsleur tungumálanámskeiðin eru þannig uppbyggð að þú þarft í raun ekki að gera neitt.

Aðeins að hlusta í u.þ.b. 30 mínútur á dag. Það er allt og sumt.

Þannig nýtir þú tíma sem annars færi til einskis.

Sérstaða Pimsleur

Það eru einkum 4 atriði sem gera Pimsleur jafn áhrifaríkt tungumálanámskeið og raun ber vitni. Þessi 4 atriði byggja á rannsóknum Dr. Paul Pimsleur sem rannsakaði um árabil tungumálanám m.t.t. Þess hvernig heilinn bregst við og tileinkar sér nýtt tungumál.

1. Kerfisbundin upprifjun​
Ein merkasta uppgötvun Dr. Paul Pimsleur tengdist líklega því hvernig heilinn lærir - tengir - ný hugtök og orðasambönd. Hann komst að því að ef nemandinn er minntur reglulega á ný orð, en með lengri bilum á milli - þá man nemandinn hugtakið lengur og lengur í hvert sinn.

Með þessu móti flytjast orðin á sem skemmstum tíma úr skammtíma minni í langtímaminni, og verður þannig hluti af “lærðum” orðaforða einstaklingsins.​

Þessi uppgötvun er í raun kjarni Pimsleur aðferðafræðinnar.

2. Eftirvæntingarlögmálið
Heili okkar er “tengdur” þannig að hann bíður ósjálfrátt eftir næsta viðbragði og reynir jafnvel að sjá það fyrir. Með því að spyrja nemandann oft og reglulega má þannig virkja nemandann og örva tiltekin heilasvæði og hugsanir.

Þannig verður auðveldara að koma orðum að hlutunum, jafnvel á erlendu tungumáli. Ólíkt hefðbundnum tungumálanámskeiðum og skólakennslu, þá byggir Pimsleur aðferðin ekki á utanbókar málfræðireglum og glósum.

3. Kjarna-orðaforði
Að ná þokkalegum tökum á nýju tungumáli krefst í raun aðeins þess að við lærum ákveðinn kjarna orða og orðasambanda.

Að reyna að læra of mikið af nýjum (samhengislausum) orðum í einu hægir aðeins á lærdómsferlinu. Mikilvægt er að ná tökum á ákveðnum setningum og byggja svo á þeim. Pimsleur námskeiðin gera þetta afar vel og kerfisbundið, svo vel að nemandinn kemur jafnvel sjálfum sér á óvart hversu hratt hann lærir.

4. Náttúrulegt nám
Öll ný orð sem kynnt eru til sögunnar á Pimsleur námskeiðunum eru sett fram í réttu samhengi.

Þú lærir setningar (frasa) sem hafa gilda merkingu. Þetta hjálpar heilanum með margvíslegum hætti, þú nærð framburði einkar vel og þetta hámarkar einnig minnisgetu þína.

Þegar þú hugsar/leitar að orði, þá dettur það fyrirvaralítið fram á varir þínar. Sjálfrátt. Nánast eins og fyrir galdra. Tungumálið, orðaforðinn, málfræðin og framburðurinn renna saman í eina samofna heild.

Lærðu nýtt tungumál á methraða með Pimsleur

Pimsleur er leiðandi á heimsvísu í hljóðrænum tungumálanámskeiðum

Byrjaðu að tala á 10 dögum! Eigðu samskipti á nýju tungumáli á mettíma og komdu vinum og fjölskyldu á óvart. Spurðu til vegar, pantaðu mat á veitingahúsum og svaraðu kurteislega fyrir þig með alvöru framburði.

Lærðu frönsku >>

Fáar borgir eru fallegri en París og fá tungumál hljóma jafn vel í eyrum og franska. 

En hefur þig aldrei dreymt um að geta talað frönsku? Hvernig væri að láta drauminn rætast núna?

Lærðu Ítölsku >>

Það er nóg að nefna Ítalíu til að senda hugann á flug, enda landið ríkt af menningu, listum og mat.

Hvort sem þú stundar sólarstrendur, skíðar niður alpana eða kýst að heimsækja stórkostlegar menningarborgir þá er Ítalía fyrir þig.

7 LYKLAR AÐ ÁRANGURSRÍKU TUNGUMÁLANÁMI

Án þeirra muntu líklega aldrei ná árangri á tungumálanámskeiðum

Skráðu þig núna og fáðu senda 7 lykla á 7 dögum!


Lærðu hvar sem er

Pimsleur bindur þig hvorki við tölvu né skrifborð Settu Pimsleur tungumálanámskeiðið þitt í spjaldtölvuna, símann eða iPod.

​Hlustaðu hvar sem er!

​Lærðu draumatungumálið þegar þér hentar, þar sem þér hentar:

  • Á hlaupabrettinu
  • Í göngutúr
  • Þegar þú vaskar upp
  • Á ferðalögum

Njóttu þess að ferðast

Þú færð mun meira út úr ferðalögum þegar þú getur komið fyrir þig orð.

Pimsleur tungumálanámskeiðin eru hagkvæm, þægileg og síðast en ekki síst, ótrúlega árangursrík.

Pimsleur Language Programs

Þú NÆRÐ árangri - Engin ástæða til að ströggla!

Sumir hlutir eru svo augljósir og náttúrulegir að við tökum ekki eftir þeim - þar til einhver bendir okkur á þá.

Það er t.d. augljóst að eina vitræna leiðin til að læra erlent tungumál er að læra það með sama hætti og þú lærðir þitt eigið tungumál, er það ekki annars?

​Sem barn heyrðir þú eldri einstaklinga tala saman. Og þú hermdir eftir þeim. Þú hugsaðir aldrei: “Ég er að læra.”. Þú vissir ekki einu sinni hvað lærdómur er.

​Engin sagði við þig: “Þetta er nafnorð” “Þetta er sagnorð” “Þetta er óregluleg sögn eða núþáleg tíð”. Enginn.

Nei, þú drakkst einfaldlega móðurmálið í þig. Þú hlustaðir, heilinn tók það inn - þar til einn daginn, að þú byrjaðir að búa til þín eigin hljóð, og þau urðu smám saman rétt. Það var engin áreynsla.

​Þannig virka Pimsleur tungumálanámskeiðin. Hlusta, herma, spjalla.Dag einn verður þú himinlifandi því þú getur haldið uppi samræðum á nýju tungumáli! Jafnvel tungumáli sem þú hefur aldrei lært í skóla og ert algjör byrjandi í. Tungumálinu sem þig hefur alltaf dreymt um að læra!

Á ferðalögum vefst það ekki lengur fyrir þér hvernig þú spyrð til vegar, hvað hlutirnir kosta, hvernig þú pantar mat og þakkar fyrir þig.

Þú munt ná takmarki þínu…með Pimsleur!

Ótrúlegt verð:~14400 ÍKR!

Pimsleur tungumálanámskeiðin eru ótrúlega hagkvæm og kostar mánaðarpakki aðeins tæplega $120!

​(U.þ.b. 14.400.- ÍKR á genginu 120).

​SVONA GERIR ÞÚ:

​Þú velur námskeiðið þitt á heimasíðu Pimsleur og gengur frá kaupum þar.

  • ​Þú velur CD eða MP3
  • Þú færð mánaðarskammt (30 hlustunaræfingar
  • Hver hlustun er u.þb. 30 mínútur
  • Gott er að hlusta á hverja æfingu 1-2 sinnum
  • Heildartíminn er því 1-2 mánuðir
  • Þú lærir MUN meira en þú hefur áður látið þig dreyma um fyrir brot af kostnaði hefðbundinna námskeiða
  • Þú getur svo bætt við hlustunarpökkum til að bæta þig og auka við orðaforðann með hægt og örugglega
  • Að lokum: 30 daga skilafrestur!

Sæktu ókeypis prufutíma!

Pimsleur námskeiðin henta þeim frábærlega sem skiljatalaða ensku sæmilega vel og vilja læra önnur tungumál en enskuna.

Pimsleur Language Programs

Dreifingaraðili Pimsleur tungumálanámskeiðanna er Simon & Schuster, stofnað 1924 og einn af 4 stærstu útgefendum hljóðbóka og námskeiða í heiminum.

Want to learn more?

Check out these articles below