
7.-10. BEKKUR
Námskeiðið hentar bæði til að styrkja einstaka þætti, eða læra efnið vel frá grunni.

HEIMA
Þú færð aðgang að lokuðu vefsvæði og lærir heima, þegar þér hentar.

ALLT Í RÖÐ
Fullkomin samfella er í námsefninu sem tryggir að enginn nemandi strandar.

LEIÐBEININGAR
Kennslumyndbönd eru stutt en ítarleg. Við kennum aðeins eitt í einu, rólega og af yfirvegun.

ÆFINGABLÖÐ
Hverjum efnishluta fylgja æfingadæmi, sem auka skilning, bæta minni, vinnuhraða og öryggi.

LAUSNARMYNDBÖND
Enginn strandar! Öll dæmi eru leyst af kennara svo nemandinn getur alltaf séð hvar hann fór af sporinu.
Árangurinn liggur í einfaldri framsetningu
Í stærðfræðinámi gildir að skilja efnið sem á undan er komið. Nemandi með gloppóttan skilning á erfitt með að skilja útskýringar kennarans.
Nemandi sem dregist hefur aftur úr hefur ekki forsendur til að skilja einkakennara. Sé ekki gripið ínn í þetta ferli, mun spilaborgin hrynja fyrr eða síðar.
Skólastofan
Vandi
"Ferkantað" umhverfi krefst þess að allir nemendur séu á sama stað í efninu og hafi svipaðan skilning.
Námskeiðið
Lausn
"Hraðbraut" er sveigjanlegt þar sem nemandinn velur efnið sjálfur.
6 MIKILVÆG ATRIÐI
sem skipta máli áður en þú velur úrræði fyrir þitt barn
1. Við útskýrum hugtökin í sérstökum hugtakamyndböndum
Margir leiðbeinendur gera þau mistök að að nota stærðfræðihugtök þegar þeir kenna, og gera ráð fyrir því að nemandinn skilji þau. Þess vegna útskýrum við alltaf ný hugtök í sérstökum hugtakamyndböndum, svo nemandinn skilji hugtökin sem kennarinn notar í útskýringunum.
2. Kennslumyndböndin okkar eru stutt - það er léttara
Önnur algeng mistök er að hafa kennslumyndböndin of löng, jafnvel 5-10 mínútur. Nemendur með athyglisbrest (ADD) eiga gjarnan erfitt með stærðfræði, og því eru löng kennslumyndbönd alls ekki það sem þeir þurfa. Við gætum þess að hafa kennslumyndböndin stutt og hnitmiðuð.
3. Æfingadæmin okkar eru nógu mörg til að skila árangri
Oft fylgja engin æfingadæmi sýnikennslu, eða þá að þau eru of fá. Eigi nemandinn að öðlast færni og sjálfstraust, þarf hann að geta reiknað 10-20 dæmi sjálfur. Þess vegna fylgja 20 sérsamin æfingadæmi með hverjum kafla hjá okkur.
4. Við útbúum lausnarmyndbönd með öllum dæmum
Þegar nemandi getur ekki leyst dæmi, þá strandar hann. Kennslumyndband kemur ekki í stað lausnarmyndbans. Þess vegna fylgja lausnarmyndbönd með öllum dæmum, þar sem nemandinn getur horft á kennara leysa dæmið skref fyrir skref.
5. 100% samfella tryggir framfarir, skref fyrir skref
Bil á milli efnishluta er hættulegt fyrir nemanda sem stendur tæpt, því hann getur fallið í slíka sprungu og setið eftir. Samfella í kennsluefninu er gríðarlega mikilvæg því þannig tryggjum við að nemandinn komist alltaf lengra, jafnvel einn og óstuddur.
6. Við kennum bara eitt í einu
Þetta er eitt mikilvægasta atriðið í stærðfræðikennslu, og mörgum leiðbeinendum sést yfir. Sem dæmi, þá er ekki gott ef kennslumyndband í almennum brotum blandar saman samlagningu, frádrætti, samnefndum og ósamnefndum brotum. Svona gerum við ekki. Við kennum bara eitt í einu, sem tryggir að nemandinn kemst á milli kennsluhluta með fullan skilning og góða færni.


Með því að kenna aðeins eitt í einu, og raða efnishlutunum saman svo þeir myndi eina heild tryggjum við að barnið þitt getur farið í gegnum efnið frá grunni og náð þannig færni sem nýtist allt fram á framhaldsskólastig!
JAFNVEL ILLA STADDUR NEMANDI KEMST ÓSTUDDUR Í GEGNUM EFNIÐ!
Sigríður
Móðir
Með ykkar hjálp tosuðum við dóttur okkur úr 2 í 7 í stærðfræði ív or, svo hún flaug inn í skólann sem hana langaði í. Takk fyrir okkur!

Kolbeinn og Halldór í viðtali hjá Sirrý á Rás 2
Reyndir höfundar
Höfundar námskeiðsins eru Kolbeinn Sigurjónsson lesblinduráðgjafi og Halldór Þorsteinsson, stærðfræðikennari. Við samsetningu námskeiðsins höfðum við þarfir lesblindra nemenda sérstaklega í huga.


VITA MEIRA
Skráðu þig í póstlistann og við segjum þér meira um námskeiðið svo þú missir ekki af neinu.
SJÁÐU HVERS VEGNA BARNIÐ ÞITT ÞARF TOPPKENNSLU
SKRÁNING
Byrjaðu strax, og það fyrir minni kostnað á heilum mánuði en stakur einkatími getur kostað!
Þú færð strax aðgang að öllu efni námskeiðsins sem leiðir nemandann áfram skref fyrir skref og skilar honum færum í almennum brotum, algebru og rúmfræði frá 7.-10. bekk!
Engin binding. Þú segir upp aðgangi þegar þér hentar. 30 daga endurgreiðsluábyrgð.
HRAÐBRAUT
Nýtt efni vikulega og fullkomin samfella frá A-Ö!
SKRÁNING
Kr.
11.900.-
/mán
Mánaðaráskrift, engin binding, 30 daga endurgreiðsluábyrgð
" 30 daga endurgreiðsluábyrgð! Þú hefur 30 daga til að sjá, skoða og nota námskeiðið og ef nemandinn bætir ekki skilning sinn á efninu endurgreiðum við þér kostnaðinn að fullu! "
ÞETTA KENNUM VIÐ!
EFNISTÖK
Við tryggjum að þú komist í gegnum efnið með því að senda þér vikulega 2 efnishluta í almennum brotum og 2 efnishluta í algebru.´

Grunnreikningur

Almenn brot - 14 kennsluhlutar

Algebra - 24 kennsluhlutar

Rúmfræði
Við útskýrum líka hugtökin!
Oft á rekja erfiðleika í stærðfræði til þess að nemandinn skilur stærðfræðihugtökin ekki nægilega vel.
Við gætum þess ávallt að byrja ekki á nýju efni nema útskýra fyrst veigamikil hugtök sem efnið byggir á.
HRAÐBRAUT
Nýtt efni vikulega og fullkomin samfella frá A-Ö!
SKRÁNING
Kr.
11.900.-
/mán
Mánaðaráskrift, engin binding, 30 daga endurgreiðsluábyrgð

30 daga endurgreiðsluábyrgð! Þú hefur 30 daga til að sjá, skoða og nota námskeiðið og ef nemandinn bætir ekki skilning sinn á efninu endurgreiðum við þér kostnaðinn að fullu!