Hefðbundin tungumálakennsla gerir lítið sem ekkert gagn þegar kemur að því að tala og skilja erlent tungumál. Já, því miður.
Hefðbundin tungumálakennsla er bókleg. Hún byggir á málfræðikennslu og glósuvinnu, orð fyrir orð.
Þessi aðferðafræði er óskilvirk í meira lagi þegar kemur að því að tala og skilja.
Flestir tala og skilja ensku betur en dönsku, þótt álíka löng kennsla og svipaðir kennsluhættir liggi að baki. Ástæðan er sú að enska er í mun ríkari mæli í umhverfi okkar, sjónvarpi, tónlist og tölvum.