sérhönnuð úrræði fyrir 1.-10. bekk
HJÁLP Í LESTRI EÐA STÆRFÐRÆÐI?
KOLBEINN SIGURJÓNSSON, LESTRARRÁÐGJÖF OG NÁMSKEIÐ
20 ára sérhæfing í glímunni við lestrar- og stærðfræðiörðugleika
Vönduð fjarnámskeið sem eru einföld í notkun, spara tíma og eru hagkvæmari en einkatímar
Ummæli foreldra og nemenda
Sé breytingu strax!
Ég skráði son minn í 2. bekk sem hefur lesið frá 4 ára aldri en ekki breyst mikið síðan þá.
Hann las ekki nógu hratt og ég vildi hjálpa honum að lesa hraðar.
Allt virkar vel og ég sé breytingu strax. Hann les mikið hraðar og hann er núna mjög ánægður og núna vill hann lesa bækur 😊
Þetta er allt nýtt fyrir mér og ég er spennt að fara að byrja að læra eitthvað og sjá síðan hvernig ég er að koma út 😊
Frábært námskeið. Bæði ótrúlega skemmtilegt og gagnlegt.
Námskeiðayfirlit
Vönduð fjarnámskeið, sérhönnuð fyrir nemendur sem standa illa og þurfa hjálp.
100%
ÁBYRGÐ
100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga!
Fjarnámskeiðin eru vönduð og þú hefur aðgang að persónulegri aðstoð til að tryggja að ykkur gangi sem best. Ykkar árangur skiptir öllu máli, enda stendur ykkur til boða full endurgreiðsla innan 30 daga ef námskeiðið stendur ekki undir væntingum.
LESUM HRAÐAR - Lestrarþjálfun
1.-6. bekkur
Gengur lestrarnámið hægt eða illa?
Lesum hraðar námskeiðið eykur öryggi og leshraða með einföldum æfingum sem taka aðeins 5 mínútur á dag og krefjast ekki bóka. Hentar vel samhliða heimalestri.
REIKNUM HRAÐAR - Hugarreikningur og margföldun
3.-10. bekkur
Eflir talnafærni, margföldun og hugarreikning
Óöryggi í hugarreikningi getur valdið miklum erfiðleikum þegar stærðfræðin þyngist. Reiknumhraðar þjálfunin eykur færni og öryggi í hugarreikningi, margföldun og talnameðhöndlun með einföldum æfingum sem taka minna en 5 mínútur á dag. Ekkert að lesa og ekkert að skrifa.
STÆRÐFRÆÐI (7.-10. BEKKUR)
7.-10. bekkur
Fyrir unglinga sem standa illa eða hafa dregist aftur úr
Nemandi sem stendur tæpt eða hefur dregist aftur úr vantar grunn. Almenn brot eru mikilvægur grunnur fyrir aðra stærðfræði, s.s. hlutföll, rúmfræði og algebru. Á námskeiðinu öðlast nemandinn þennan grunn sem undirbýr hann undir upphafsáfanga í framhaldsskóla.
Glósuskólinn
Efsta stig grunnskóla, framhalds- og háskólanemendur
Námstækni sem minnkar námsálag, bætir minni og skilar betri árangri. Og sparar tíma.
Lærðu námstækni sem hjálpar þér að draga verulega úr lestrar- og námsálagi. Þú lærir að glósa minna en með áhrifaríkari hætti sem auðvelda þér að skilja efnið betur og muna það lengur. Síðast en ekki síst lærir þú að læra fyrir próf á skemmri tíma og með skilvirkari hætti.
harpa | móðir nemanda
Bara snilld!
Þetta er bara snilld! Sonur minn sem er orðinn 20 ára núna og er lesblindur fór á námskeið bæði í sambandi við lesblinduna og stærðfræðina og þetta gerði kraftaverk fyrir hann!
Ég á örugglega eftir að kaupa aftur fyrir tvo unga drengi sem eiga eftir að nýta sér þetta í framtíðinni. Takk innilega fyrir!
Kærleikskveðja
GREINAR OG FRÓÐLEIKUR
Er barnið þitt lesblint?
Hefur heimalesturinn skilað litlum árangri?
Hvort sem barnið þitt er lesblint eða ekki,
þá eru miklir erfiðleikar í lestri vísbending um
að tími sé kominn á aðra nálgun.
Sérhæfð ráðgjöf og námskeið fyrir nemendur sem eiga erfitt updráttar í skóla. Við einbeitum okkur að lestrar- og stærðfræðiörðugleikum og bjóðum í dag upp á einfaldar og hagkvæmar lausnir í formi heimaþjálfunar fyrir þennan hóp.
Um höfundinn
Kolbeinn Sigurjónsson lærði lesblinduráðgjöf hjá Davis Dyslexia Association og hefur starfrækt Betra nám frá árinu 2004. Kolbeinn hefur sérhæft sig í úrræðum tengdum námsörðugleikum og hefur sinnt þjálfun, kennslu og ráðgjöf um árabil.