7 algeng einkenni lesblindu

7 algeng einkenni lesblindu

Þekkir þú algeng einkenni lesblindu? Sum þeirra eru lúmsk og kunna að koma á óvart, en eru oftast augljós eftir á. Hver eru þau?

Lesblinda vex ekki af barninu

Lesblinda vex ekki af barninu

Lesblinda er samansafn einkenna. Lesblinda er ekki sjúkdómur, við greinum hana því ekki með einföldum hætti eins og blóðprufu. Og það sem meira er, lesblindueinkennin geta verið afar breytileg milli einstaklinga.

Og til að gera þetta enn fjölbreyttara, þá eru einkennin einnig breytileg hjá sama einstaklingnum.

En sumar vísbendingar eru áreiðanlegri en aðrar, og hér ætla ég að fjalla um 7 þeirra:

1. Erfiðleikar með tákn

Flestir lesblindir nemendur eiga erfitt með tvívíð tákn. Einkum þau sem líkjast öðrum táknum, s.s. b og d, o og ó. Stafaruglingur er reyndar mjög algengur meðal byrjenda en hann rjátlast oft seint og illa af þeim sem síðar greinast lesblindir.

2. Erfiðleikar með að muna merkingu

Sum tákn hafa merkingu, s.s. “+” og “x”. Að tengja merkingu við tákn reynist oft bæði erfitt og ruglingslegt.

3. Órói þegar einbeitingar er þörf

Lesblindur nemandi finnur oft til óróa og jafnvel svima þegar hann reynir að einbeita sér við eitthvað sem hann skilur illa. Hann getur verið djúpt sokkinn og rólegur þegar hann leirar eða leikur sér með legó eða teiknar, en iðar allur þegar hann reynir að lesa, skrifa eða reikna.

4. Erfiðleikar við að skilja merkingu huglægra orða

Orð sem fela í sér huglæga merkingu eiga það oft sameiginlegt að það er erfitt að sjá þau í huganum. Myndræn hugtök eins og “stóll” og “epli” festast fljótt og vel í minni, en orð með óljósa (bókstaflega!) merkingu festast seint og illa. Dæmi um slík orð geta verið orð tengd tíma (síðar, kortér, gengin), áttir (austur og vestur, hægri og vinstri, lóðrétt og lárétt) svo ekki sé minnst á algeng stærðfræðihugtök (nefnari, teljari, námundun ofl.).

5. Erfiðleikar við að læra raðir

Að læra röð krefst samfelldrar einbeitingar og athygli. Einstaklingur sem á erfitt með að halda athygli gefst oft upp á að læra raðir og af þeim sökum gengur oft hægt að læra runur eins og dagana, mánuðina, stafrófið og margföldun. Hafðu í huga að þessar runur samanstanda af ómyndrænum orðum sem gera þetta enn erfiðara.

6. Styrkleikar í sjónrænum, verklegum og skapandi greinum

Eitt helsta einkenni lesblindu er gott ímyndunarafl. Nemandinn á því oftast auðvelt með að sjá hluti fyrir sér. Þessi hæfileiki nýtur sín einna best í greinum þar sem hugur og hönd fá að njóta sín, s.s. smíði, handavinnu, matreiðslu.

7. Uppsker ekki eins og hann/hún sáir

Æfingin skapar meistarann. Ef barnið þitt reynir ítrekað að læra það sama og fylgir æfingunum samviskusamlega, en með litlum árangri, þá er líklegt að eitthvað sé að hamla framvindunni. Æfingar eru gríðarlega mikilvægar en ef þér finnst þú hjakka í sama farinu, þá er tilefni til að skoða málið betur.

Athugaðu að þetta er alls ekki tæmandi listi og er aðeins ætlað að gefa mynd af algengum einkennum lesblindu, því miklu skiptir að grípa inn í þá óheillaþróun sem lestrarörðugleikar eru sem allra fyrst.

 

Ummæli

ummæli lesenda

Fáðu nýjustu póstana beint í innhólfið þitt!

Um Kolbeinn Sigurjónsson

Ég heiti Kolbeinn Sigurjónsson og starfræki Betra nám. Markmið Betra náms er að veita ráðgjöf og úrræði í tengslum við lesblindu og námsörðuguleika sem henta aldri og getu hvers og eins. Betra nám hefur boðið upp á Davis lesblindunámskeið og tók virkan þátt í innleiðingu Davis aðferðafræðinnar á Íslandi.

Ég er með diploma réttindi frá Alþjóðlegu Davis samtökunum (Davis Dyslexia Association International), auk réttindi til dáleiðslumeðferða (Dip.Hyp.Therapy) og B.sc. í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Trackbacks

  1. […] Nemandi sem upplifir þessa tilfinningu ítrekað (þ.e. skynvillu) þegar hann sér stafi eða orð, getur þróað með sér lesblindu.  Athugaðu að lesblinda er greind út frá einkennum, eins og ég skrifaði áður um í póstinum 7 algeng einkenni lesblindu. […]

Hvað finnst þér? Sendu línu!